24.08.2006 12:44:23 / gugga-

Hætt

Hææ.. Er hætt með þessa síðu, eg og Særún höfum gert okkur síðu saman, www.blog.central.is/lamelle/  Allir að kíkja ;)

Bæb =)

» 0 hafa sagt sína skoðun

12.08.2006 17:27:45 / gugga-

Ný tölva ;D

Halló :)

Já, eg hef ekkert að gera þannig ég ákvað að blogga bara! En það er ekkert nýtt að frétta af mér þannig.

En í gær keyptu mamma og pabbi nyja fartölvu handa mér ;D Allt annað að vera í fartölvu heldur en sonna venjulegri tölvu. Þannig maður verður með tölvu á Laugarvatni :D

En núna síðasta vika hjá mér er bara búin að vera chill, búin að vera í fríi alla vikuna :) En svo fer ég aftur að vinna á mánudaginn. Fínt að fara vinna aftur, maður verður svo þreyttur alltaf og eitthvað ef maður er lengi í fríi.
En í dag vaknaði ég um 12 leitið, svo skutlaði mamma mér til Hörpu frænku í litun og plokkun kl 1. Kom svo heim um hálf 2 og vakti Hannes, sem gekk ekkert svakalega vel, en hafðist þó á endanum. Svo kíktum við bara á leikinn, Reynir - ÍR. ÍR unnu 3-2. Bara sanngjarn sigur, Reynir gátu ekkert. Áttu bara skilið að tapa þessu. En svo eftir leikinn fór ég bara heim og Hannes fór að laga vespuna sína.

Særún var að fara út áðan, til Danmerkur til bróður síns. Verður í viku, eins gott fyrir hana að vera ekki lengur sko. En vonandi skemmtir hún sé bara vel ;)

En já ég er búin að röfla og röfla um akkurat ekki neitt!
Hehe Bææ ;)

» 5 hafa sagt sína skoðun

08.08.2006 20:16:36 / gugga-

Galtalækur

Hallo ;)

Jæja, þá er Verslunarmannahelgin búin.. Ég skellti mér í Galtalæk, kom heim í gær! Vorum nokkur saman ; Ég, Hannes, Særún, Habbý, Ásgeir, Gísli og svo voru Marel og Ási þanna líka ;D Svo vorum við mikið með Ernu og Heiður ;) 
Ég og Hannes fórum í bíl með Matta bró, og Særún og Habbý með Hadda og Ásgeir með eitthverjum, hehe! En það var ekki neitt leitað í okkar bíl en bíllin hjá stelpunum var sko tekinn í gegn ;D hehehe. Getið séð það hér; http://www.b2.is/?sida=tengill&id=180692 haha ;D
Svo voru eitthverji fullt af strákum við hliðina á okkur í tjaldi með nokkra kassa af bjór og eitthverjar flöskur, og því var öllu hellt niður! Þeir voru sko brjál! Enda skil ég það vel, því þetta hefur ekki verið lítill peningur!
Á föstudeginum voru Paparnir og Skítamórall að spila og á laugardaginn var Ízafold og Sumargleði og svo á Sunnudeginum voru Stuðmenn ;D
Öll kvöld ógeðslega skemmtileg, nema mér fannst skemmtilegast á laugardeginum ;D
En svo vorum við með 5 stóla og þeim var öllum stolið! :$ En ég nenni ekki að fara segja frá hverjum degi fyrir sig! Þannig þetta er bara fínt ;) En þetta var allavega ógeðslega skemmtileg helgi ;D Svo er það bara Eyjar eða Akureyri á næsta ári :D

En svo er ég núna komin í vikufrí frá vinnu ;D Byrja aftur á mánudaginn næsta. Vinn í 4 daga, fæ svo frí frá föstudegi - sunnudags og fer svo á Laugarvatn á mánudeginum. Váá, þetta er búið að vera ógeðslega stutt sumar!
Ég fékk útborgað fyrir helgi, er alveg helvíti sátt ;D

Ástrós, Magnea og Magga eru allar komnar heim ;D Ástrós er ógeðslega brún! :) Svo koma Ásdís og Ástrós á fimmtudaginn!
Mér langar líka út að fá eitthvern lit :$

En heyrðu, er að setja myndirnar inná frá Galtalæk ;)



Bless :*

» 3 hafa sagt sína skoðun

30.07.2006 15:03:53 / gugga-

Æfingarakstur ;D

Daginn ;)

Jæja, kellan komin með æfingarakstur, var að klára síðasta tímann minn áðan ;D Elska að keyra sko, þannig m & p fá örugglega engan frið fyrir mér, finnst svo gaman að keyra... hehe! En kannski segji ég þetta bara núna, held það ;) hehe.

En ætla aðeins að segja ykkur frá helginni minni, sem var nú frekar róleg, gerði ekki mikið.

Föstudagur : Vaknði 6 til að fara í vinnu. Fínn vinnudagur, nema þessir pólverjir geta aaldrei ákveðið sig, okay, við vorum að pakka í blokk, svo vorum við búin að fylla 7 pönnur, þá kemur einn pólverjinn og segjir að við áttum ekki að gera meira, þannig við þurftum að losa úr 7 pönnum!! Já, það tók sinn tíma. En svo þrifum við allt þegar við vorum búnar og vorum búnar að ganga frá öllu í blokkinni. Vorum bara fara uppá línu.  En neinei, kemur gaurinn ekki aftur til mín og segjir mér að við áttum að halda áfram! Þannig við þurftum að byrja aalveg uppá nýtt! :$ Svo hlógu þeir eins og hálfvitar ;D hehehe.
En svo eftir vinnu kom ég bara heim og fór beint í æfingarakstur. Svo um kveldið komu Særún og Diddi til mín, vorum bara chilla hér og spjalla. Svo fóru þau heim um 1 leitið og ég fór bara að sofa því ég var að fara í vinnu næsta dag.

Laugardagur: Vaknði 6 til að fara í vinnu. Fór svo heim um 9 leitið, því ég var að deyja í maganum, geeeðveikt óglatt, og það skánar ekki að vera alveg að fara æla þegar maður er inní fiskihúsi. Lyktin var alveg að fara með mig. Þannig Dóra sagði mér bara fara heim. Fór heim beint í sturtu og svo að sofa.. Vaknaði um 1 því ég var að fara í ökutíma. Svo um daginn kom Særún til mín. Um kveldið lágu ég og Særún geggjað chillaðar að horfa a Video, vorum ýkt þreyttar! En svo um 12-1 leitið, þá bara allt í einu komu ; Ásgeir, Diddi, Sasan, Hjörtur, Tanja, Siggi Þorsteins, Berta, Kolbrún og Ómar hingað :) Held ég sé ekki að gleyma neinum, gæti verið að það hafi verið eitthver annar, man það bara ekki í augnablikinu. En svo voru allir farnir bara um 4. Þá fór ég bara að sofa.

Sunnudagur (Í dag) : Vaknaði um 1 til að fara í ökutíma. Svo er ég bara búin að vera chilla heim í tölvu, var að reyna finna Sims leikinn minn, en finn hann ekki :$ Lanagr geggjað í Sims því Gulla var að spurja mig hvernig maður gerir peningasvindl, þá fékk ég bara geggjaða löngun í Sims. hehe :D

Já, svona var helgina mín..

En svo er Hannes að koma heim á morgun eða hinn. Loksins,loksins.. Á þriðjudaginn er hann búin að vera þanna í 2 vikur!! :/

Svo bara Verslunarmannahelgin næstu helgi ;D Er að spá í að kíkja í Galtalæk :) En hvert ætlið þið að fara ? Svariði í skoðanir.. plíís..
En þetta er komin fínt, Bæb :*

» 4 hafa sagt sína skoðun

23.07.2006 17:27:24 / gugga-

..

Heelló ;D

Þá er helgin að verða búin. Þoli ekki hvað helgar eru of fljótar að líða en svo virkir dagar lengi að líða!
En helgin hjá mér var ekkert annað en bara chill. M & P fóru í ferðalag eitthvern timann i siðustu viku, þannig ég er búin að vera ein heima í nokkurn tíma. Er ekki frá því að þau geri ekki annað en að vera í ferðalagi og keyra um þetta blessaða land.
Allavega á föstudaginn var ég bara að vinna til hálf 6. Kom svo heim og fór í sturtu og prófaði að slétta þessar krullur aðeins úr mér, þá var hárið á mér geðveikt gróft og mikið eitthvað :/ Vil láta taka þessar krullur úr. En já allavega um kvöldið þá kíktu Særún, Magnea, Diddi og Magga hingað ;) Spjölluðum bara og svona, reyndar sat Særún föst yfir Notebook allt kvöldið ;D
Á laugardaginn vaknaði ég um hálf 2 og fór beint á leikinn, Reynir - Sindri, auðvitað rústuðu Reynir því 6-0 :) Dolli með þrennu (Y)
Svo á laugardeginum þá gistu Elfar, Guðjón, Alexander og Júlíus allir hér, var að passa því það voru allir á Konukvöl. Þegar þeir 4 koma saman þá verður meira en stríð. Var komin með meira en nóg.
En Habbý, Ástrós og Magnea voru svo æðislegar og voru hérna með mér um kveldið. En strákarnir sofnuðu ekki fyrr en um 3 leitið! Héllt ég þyrfti að vaka í alla nótt með þeim!!
Svo í dag vöknuðu þeir um 12, gaf þeim að éta og svo fóru þeir heim. Svo voru gömlu hjónin bara að koma heim fyrir kl.

Ætlaði bara að vinna í 2 vikur í viðbót, en svo var ég spurð hvort ég gæti ekki unnið alveg að skóla því það vantar konu í pökkun. Ég náttla þorði ekki að segja nei, þannig ég fæ ekkert frí. Vinn alveg að skóla :$ En ég verð allavega ánægð eftir á :D

Ég er ekki frá því að allir séu að fara út  nema ég. Sko, Ástrós Lind er að fara á morgun, Ásdís og Ástrós á fimmtudaginn, Magga á þriðjudaginn, Særún 12. ágúst, Habbý líka eitthvern tímann í ágúst, Magnea eftir viku. Svo er Ásgeir að koma heim á miðvikudaginn. Jiiii. Mér langar líka :evil:

En shitt, það styttist í að ég fari á Laugarvatn, ekki nema 29 dagar :| Fjórar vikur á morgun! Mér er farið að kvíða alltof mikið fyrir :!:

En þetta er komið fínt, en viljiði plís skrifa í skoðanir! Held að enginn skoði þessa síðu..

Later :*


» 10 hafa sagt sína skoðun

18.07.2006 19:20:34 / gugga-

Rolla ?

Halló ;)

Dagurinn í dag er bara búin að vera chill, fór ekki í vinnu í morgun því ég var með ælupest í nótt :/
En svo í dag þá fór ég í permanett (kann ekki að skrifa þetta), ooog shiiit, ég er eins og rolla, ég er ekki að grínast! 8| Geri þetta aaldrei aftur.

En yfir í annað skemmtilegra.. Um helgina kíktum við nokkrar stelpur uppí bústað ;D Fékk bústaðinn hja M&P. Geggjað skemmtileg helgi, verðum að gera þetta aftur. Held að allar séu sammála mér, nema ein sem gat pínu röflað :)
En Ásdís var ekkert smá gáfuð og tók símann hennar Silju óvart með, allt í einu hringdi eitthver sími á leiðinni og enginn vissi hver átti þennan síma. hahaha ;D Hún er ágæt greyjið ;)
Á laugardeginum fórum við á Selfoss, vorum þar allan daginn. Fórum í eitthverjar búðir og keyptum okkur eitthvað drasl.. En svo rákust við á Europris, ætluðum bara aðeins að kíkja þangað inn að skoða, en neinei komum allar út með troðfulla poka ;D
En veðrið var ekki aalveg skemmtilegast.. Rok & rigning alla helgina. Svo var ég að hlusta á Súper á FM í vinnunni í gær og þá hringdi einn inn og sagði að hann væri rétt fyrir utan Selfoss í 20 stiga hita!! (Þar sem bústaðurinn er) Típískt ? hehe. En þetta var fínt að sitja inní bústað að chilla í ógeðslegu veðri. Ýkt kósý ;)

Komnar myndir frá helginni. Sumarbústaðaferð og fl.
En þetta er komið fínt í bili (: Bless :*



» 0 hafa sagt sína skoðun

12.07.2006 22:34:32 / gugga-

...

Halló :)

Já, maður gerir nú ekki meira þessa dagana en að vinna, vinna og aftur vinna. Er að fá alveg nóóg af þessu.. búin að taka allar yfirvinnur núna og það er búið að vera yfirvinna i 2 vikur straight, en maður fær þá allavega nóg pening ;D

En ég gerði ekkert skemmtilegt um helgina.

Fös : Var að vinna til hálf 6.. Svo um kveldið kom Hannes, Særún, Ástrós og Magnea til mín. Fór svo bara sofa snemma..

Laug : Vaknaði kl 6 til að fara í vinnu. Vann bara til 12, nennti ekki að vera lengur :$ En svo henti ég mér heim í sturtu og svona og svo kíktu ég, Særún og Habbý í Kef, fórum í Gallery og Subway (: Svooo, ööö! Shii.. ég man ekki hvað ég gerði um kveldið :| En allavega hefur það ekki verið neitt skemmtilegt fyrst ég man það ekki.

Sunnud : Vöknuðum kl 2. Hannes fór heim til sín um 3 og þá kíkti ég í sund með Særúnu og Habbý.. Geeðveikt heitt maður 8) Svo um kvöldið var ég bara heima.

Skemmtileg helgi ekki satt ? heheee..

En næstu helgi þá erum við nokkrar stelpur að fara uppí bústað :haha: Fékk bústaðinn hjá gömlu hjónunum í láni ;D Það verður eitthvað stuð vonandi ;)

Hann Ásgeir Þór var að fara til Spánar í morgun!! Ooo, mér langar svo út í sólina og hitann, þótt ég hafi eiginlega bara verið að koma heim.

En var eiginlega bara að koma heim núna af leik hjá meistaraflokk kvenna GRV.. Eða fór þegar það voru eitthverjar 10 mín eftir, þá voru þær allavega að tapa 2-0.
En svo eru 3. fl. kv. GRV að fara spila á morgun hérna í Sandgerði á móti Kef, hvet alla til að koma og styðja þær ;D Þær vinna þetta ;)

En er farin að horfa a O.C. Endiilega skrifið eitthvað í skoðanir, hún er alveg að farast greyjið síðan.

Later :*

» 6 hafa sagt sína skoðun

03.07.2006 22:20:30 / gugga-

Duglegust.

Halló :)
Mánudagur í dag eins og flestir hafa tekið eftir held ég.. Ég gjörsamlega hata mánudaga því þá er heil vinnuvika framundan. Samt var dagurinn í dag eitthvað svo fljótur að líða ;D Enda gat hún Magga röflað um alls ekki neitt! Það finnst henni sko ekki erfitt :) Já talandi um Möggu, þá var hún að fá sér einkanr á bílinn hjá sér, það stendur sko MAGGA I :D Voða flott.. Kostaði líka örugglega sitt (: hehe. Er farin að halda að hún skíti pening, en samt vinn ég á sama vinnustað og hún, samt á ég aldrei pening :$ Kannski kann hún að spara annað en sumir.
En ég vona að þessi vika verði fljót að líða, verður samt örugglega hundleiðileg vika því það er promotion núna :/ Þannig það verður örugglega vinna til 7 eitthvað og kannski vinna á laugardaginn.
En eftir þessa viku þá á ég 4 vikur eftir í vinnunni. Svo er sumarfrí í Ný-fisk í viku, þannig ég byrja ekkert aftur þá því nokkrum dögum eftir sumarfríið í Ný-fisk þá fer ég á Laugarvatn. Þannig ég er bara búin 4. ágúst :haha:
En shii, þetta fer allt að styttast, er orðin helvíti stressuð að fara í ML. Ýkt hrædd um að ég komi heim strax eftir 1 ár, sem ég hef mikla trú á. Vona bara að þetta verði ógeðslega gaman, sem ég hef heyrt á mörgun stöðum :) Byrjar allavega vel, busaball 25. ágúst ;D

En ætla segja ykkur frá síðustu dögum í stuttu máli ;

Á þriðijudaginn fóru m&p í ferðlag í viku. Komu heim í gærkveldi. En það var alveg fínt, nema enginn mamma til að elda mömmumat :/ En ég reddaði því með Mamma Mía á hverju kvöldi örugglega ;)
Á föstudaginn var ég bara að vinna til 3, ég og Særún kíktum í ljós. Þegar við komum heim voru Ásgeir og Hannes bara eitthvað að chilla hér heima. Við pöntuðum okkur pizzu, græjuðum okkur svo og fórum svo heim til Tomma. Vorum þar held ég allt kvöldið, eitthvað pínu hérna heima :)
Á laugardaginn vöknuðum við um 2, og vorum alveg að deyja, okkur langaði svo í pizzu. Þannig við hringðum í Særúnu, Ásgeir og Ástrósu og fórum niðra Mamma Mía að fá okkur að éta og horfðum á leikinn, England - Portugal. Váá var að deyja úr spenningi, og var svo ekkert smá fúl eftir leikinn. Svo á laugardagskvöldinu láum við heima yfir 3 dvd-myndum. Ýkt nice ;) Nenntum ekki að gera neitt.
Svo á sunnudeginum pöntuðum við okkur aftur mat frá Mamma Mía og chilluðum bara hérna heima. Svo í dag var ég bara vinna til hálf 6.

En já svona eru síðustu dagar hjá mér búnir að vera, ekkert svakalega spennandi ég veit. hehe.

En er farin að horfa a tv-ið. Bless:*


» 4 hafa sagt sína skoðun

25.06.2006 18:26:16 / gugga-

=)

Halló ;) Langt síðan ég bloggaði! Hef ekki nennt því eða ekki haft tíma..

En ætla segja pínu frá helginni í stuttu máli :) Sem var alveg fín (:

Föstudagur;
Var að vinna til 3, það var samt vinna til hálf 6 en við stelpurnar nenntum ekki að vera lengur þannig við ákvuðum að fara bara fyrr út í sólina ;D Um kveldið kom Ásgeir til mín, svo um 10-11 komu stelpurnar, þannig við kíktum bara út að rölta.. Fórum svo heim til Tomma, þar var eitthvað af fólki! Svo fór ég bara heim að sofa um 3-4.

Laugardagur:
Vaknði um 1 leitið og fór beint á leikinn, Reynir - KS/Leiftur. Reynir rústuðu því 4-1 :D Eftir leikinn kom svo Hannes til mín. Um kvöldið fóru ég, Særún og Ástrós niðri sjoppu að spjalla við Ásdísi. Svo um 12-1 leitið fórum við heim til Tomma, eitthvað að f fólki þar aftur, reyndar solldið mikið meira en var á föstudeginum ;D Helvíti gaman þar. Kíkti svo aðeins með Möggu og Ástrósu heim til Karen Helgu, stoppaði þar í sonna korter, því mér fannst ekkert gaman þar. Fór svo bara aftur heim til Tomma :) Þegar eg kom til baka þá var bara allt í rústi, þvílík læti, en svo leystist það allt og allir sáttir ;) Heeld ég. Svo bara um 4 leitið kíktum við aðeins heim til Marinó, svo fórum við bara heim að sofa um hálf 5-5 :)

Svo í dag er ég bara búin að vera rölta með Ástrósu, Magneu, Hannesi og Ásgeiri.
Alveg helvíti fín helgi ;)

Svo er ég að fara í ökuskólann á morgun til fimmtudags :^) Örugglega hundleiðilegt.

En kjúklingurinn kallar, bææ :*

» 6 hafa sagt sína skoðun

15.06.2006 12:55:17 / gugga-

Veik

Halló :)

Já, er ekki alveg sú duglegasta að blogga, en kannski því maður gerir liggur við ekki annað en að vinna þessa dagana nema í dag.
Jáb, er semsagt veik. Ég hata að vera veik, er að kafna úr kvefi og hálsbólgu, svo eru eyrun ekkert skárri :/ Myndi frekar vilja vera vinna þótt það sé ekkert svaðalega spennandi.

En já eins og ég segi þá gerir maður liggur við ekkert annað en að vinna þessa dagana. Það er sonna promotion vika núna, þá er ekkert lítið að gera.. En svo í gær var eitthvað lítill fiskur, bara vinna til 3, þvílíkur lúxus ;) Svo fær maður bara útborgað á morgun (: jeijj

En í dag fæ ég örugglega að vita hvort ég komist inn á Laugarvatni. Ætla rétt að vona að ég komist inn, því mér langar ekki í FS, dno why :/ En samt er ég líka kvíðin ef ég kemst inn á Laugarvatni :/ Vona að það verði stuuð að vera þar..

En svo er ég aftur byrjuð að æfa fótbolta, búin að vera hætt í nokkrar vikur, enda er það farið að sjást á manni. En ég héllt að ég hefði engan áhuga á þessu, en svo þegar maður er búin að vera hættur í eitthvern tíma, þá saknar maður þess solldið að vera í fótbolta, þannig að það er greinilega eitthver áhugi þarna innst inni.

Svo bara 17. júní á laugardaginn ;) Verður potto ekki vinna, því það er bannað að vinna á þessum degi ;D

en ætlaði bara aðeins að láta vita af mér, bless :*


» 10 hafa sagt sína skoðun

09.06.2006 17:47:22 / gugga-

: )

Hoola ;)

Já þá er vinnan byrjuð á fullu, geeðveikt fyrst núna fyrstu dagana, eða maður verður geggjað þreyttur alltaf eftir vinnudaginn. Sofnaði líka í gær kl 8.
En var bara að vinna til 2 í dag því ég þurfti að fara til læknis, hefði samt alveg viljað vera lengur útaf það var yfirvinna.

En útskriftin hjá okkur var á þriðjudaginn. Ógeðslega leiðiilegt að vera kveðja grunnskólann, nenni ekki þessu veseni að fara skipta um skóla og hafa allt nýtt og svona, er alltof feimin í þannig :/
En allavega tókst útskriftin ágætlega, gleymdust víst eitthver verðlaun og svo gleymdist að láta Teresu spila. En annars gekk þetta ágætlega. Hrafnhildur Ása las ræðu fyrir allan bekkin, rosa flott ræða :) Og svo gáfu við öllum kennurum blóm, eða allir fengu voða flotta rós nema Einar Sveinn og Katrín, þau fengu blómvönd ;)
En svo skiptu Habbý og Magnea verðlaununum á milli sín, til hamingju með það ;)

En ég veit ekkert hvað ég geri um helgina. En Særún & Hannes eiga afmæli á morgun : ) Shiii, veit ekkert hvað ég á að gefa þeim...

En það er komið nýtt í mánaðarins.
Komið nóg í bili, blee (:

» 4 hafa sagt sína skoðun

05.06.2006 18:49:06 / gugga-

(:

Halló ;)

Jæja, þá er maður komin í sumarfrí. Eða getur maður kallað þetta sumarfrí ? Verð að vinna í allt sumar, en já þá allavega sumarfrí frá skóla. En útskriftin hjá okkur 10. bekk er á morgun en skólaslitin voru á fös.
En váá hvað ég á eftir að sakna þess að vera í grunnskóla :/ Og á eftir að sakna Röggu og Einar Sveins mest. hehe (: Geta þau bara ekki komið og kennt á Laugarvatni ? hehe.
En allavega þá er vinnan að byrja á morgun, er ekki alveg að nenna byrja strax!

Í dag vöknuðum við um 2, fórum beint á leikinn og svo kom ég hérna heim og tók fram vinnugallan minn og eitthvað ;D hehe. Svo veit ég ekkert hvað ég geri í kvöld.

En svo eiga Særún & Hannes afmæli á laugardaginn ;D Hvað á ég að gefa þeim ? Veit eekkert hvað ég á að gefa þeim. Það er ekki hægt að spurja þau, ef maður spyr hvað þeim langar í þá segja þau alltaf : Ekkert, langar ekki í neitt.
Hehe alveg spes sko ;)

En já þetta er komið fínt held ég, átti ekkert að vera neitt langt blogg, ætlaði bara aðeins að láta vita af mér :)

Enda þetta með einni skólamynd af nokkrum í bekknum sem var tekin á fös strax þegar við vorum búin að fá útur samrændu, haha ;D


(:

Bless ;)


» 6 hafa sagt sína skoðun

30.05.2006 21:11:18 / gugga-

Komin heim.

Hola ;)

Jæja þá er maður heim, úr sólinni og í kuldan. Kom heim um 2 leitið or some. Alltof löng flug sko, var að deyja! Flugum kl 7 í morgun og lentum kl 1, var alveg komin með nóg. En allavega þá var þetta ógeðslega skemmtileg ferð ;D Held ég hafi upplifað mína skemmtilegustu verslunarferð sem ég hef farið í :D hehe.. En ég nenni samt ekki að fara að segja frá öllu, svo mikið að segja þá :D hehe. Allavega þá skemmti ég mér ógeðslega vel, væri alveg til í að fara aftur eitthvern tíman út með þeim ;) Takk fyrir mig Bragi & Hanna :*

En svo er bekkurinn núna í vorferðalaginu, en það var víst voða fáir sem fóru, enginn af strákunum frétti ég. En vonandi skemmta stelpurnar sér bara vel ;D Og svo er 9. bekkurinn í Danmörku, koma annað hvort heim á fimmtudaginn eða föstudaginn.

Svo bara vinnan að byrja eftir viku :/ Hlakka samt pínu til.. hehe.
En í kvöld ætla ég að kíkja eitthvert með Sasani og Didda :P

Hef held ég bara ekkert meira að segja, þannig ég enda þetta bara með nokkrum myndum frá Lanzarote ;D Læt svo afganginn inn kannski seinna.









Later ;) :*


Ég samhryggist fjölskyldu, ættingjum og vinum Péturs Snæ.
Hvíldu í friði :*


» 6 hafa sagt sína skoðun

15.05.2006 12:44:31 / gugga-

Lanzarote 8)

Góðan Daginn, fólkið ekki hress ? ;)
Allavega þá er ég ekki alveg hress því ég er eiginlega veik, er að kafna úr kvefi og hálsbólgu og svo er ég með eyrnabólgu, eða var með það í gær og í nótt og það ógeðslega vont!
Já svo er Lanzarote bara í fyrramálið, í sóliiina 8) Vona bara að ég verði skárri á morgun.

En allavega, helgin var geggjað fín, eiginlega svona stelpuhelgi ;D hehe. Var ein heima og svona.
Á fös voru við bara chilla hér, ég, Særún, Habbý, Magnea, Ástrós Lind, Steffý, Diddi, Hannes og Ásgeir! Eða Hannes og Ásgeir komu ekki fyrr en um 1. Geggjað nice kvöld :)
Svo á laugardeginum vorum við; ég, Ástrós, Magnea, Særún og Habbý eiginlega allan daginn að reyna setja upp trampólínið mitt ;D Því það er solldið beiglað, fór með vindinum og fór í rúst nefnilega. hehe. En svo loksins náðum við því saman, en það var alveg helvíti skakt :D Svo um kvöldið vorum við bara að hoppa og eitthvað, kíktum út og eitthvað. Svo komu Hannes og Ásgeir ;)
Geggjað nice helgi sko, fínt að hafa svona eina chill helgi á milli ;)

En svo í morgun fór ég í skólann bara, en fór svo heim veik í frímó og var eiginlega bara að vakna núna!:) Svo í kvöld er síðasta bekkjarkvöldið með bekknum saman, ætlum að borða á Mamma Mía og fara svo eitthvað uppí skóla að gera eitthvað ;D

En já held að þetta sé bara komið, ég blogga ekkert fyrr en eftir 2 vikur þegar ég kem heim.

Ein mynd frá laugardeginum (:



Later (;  Það eru komnar nýjar myndir frá laugardeginum, í Trampólín :)


                                                                                                                          Gangi ykkur vel í prófunum ;)



» 10 hafa sagt sína skoðun

12.05.2006 13:25:20 / gugga-

Rafting ;D

Halló ;D

Við bekkurinn fórum í óvissuferð á miðvikudaginn, fórum í Rafting og fengum svo að éta. Héldum fyrst að við myndum líka gera eitthvað meira eftir Rafting en gerðum það ekki, enda var Rafting líka alveg nóg, maður er alveg búin etir þetta ;D Enda ógeðslega skemmtilegt sko :D Stukkum líka af 4-6 metra kletti og eitthvað ofan í ánna, helvíti köld áin sko, hehe. En svo fór ég næstum bara með ánni, haha :haha: Kann ekkert á þetta. Þegar við komum til baka þá var maður að krókna sko og ég þrútnaði ekkert smá á puttunum og tánnum, hehehe. Og tærnar á Særúnu voru gular, haha vorum geggt hræddar fyrst, en svo lagaðist þetta ;D
En allavega ef þið hafið ekki farið í þetta, þá myndi ég drífa mig. Geðveikt gaman :haha:

En yfir í annað.. Fór á fyrsta heimaleik hjá Reynir í gær, móti eitthverju utandeildarliði, Tungið held ég að það heiti. Reynir unnu held ég 4-0..

Svo veit maður ekkert hvað á að gera um helgina.. Vonandi eitthvað skemmtilegt, gömlu hjónin allavega að fara uppí bústað og svonerý ;)

En heyrðu, ætlaði bara láta vita af mér.. En ætla enda þetta á myndum frá Rafting ;D


Ekki cool ? ;D


Ahh, kalt. Vaða úti :D


Og svo allur hópurinn, allir í voða góður skapi ;D

Later ;)

Set fuullt að myndum inn á eftir frá Rafting ;D


» 10 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2